Nú er leikur Brasilíu og Sviss að hefjast í E-riðli en fyrr í dag hafði Serbía betur gegn Kosta Ríka, 1-0, í sama riðli.
Í dag byrja sjö leikmenn inn á sem spiluðu leik Sviss og Brasilíu á heimsmeistaramóti u-17 ára liða.
Árið 2009 varð Sviss heimsmeistari u-17 ára liða og á leið sinni að heimsmeistaratitlinum sló liðið það brasilíska út í riðlakeppninni.
Fjórir leikmenn í byrjunarliði Brasilíu í dag spiluðu á þessu móti. Alisson er að sjálfsögðu einn þeirra en hinir eru þeir Neymar, Coutinho og Casemiro.
Í liði Sviss tóku þrír leikmenn þátt sem eru að byrja inn á í dag. Það eru þeir Granit Xhaka, Ricardo Rodriguez og Haris Seferovic.
Seferovic skoraði einmitt markið í 1-0 sigri Sviss sem sá til þess að Brasilíumennirnir dyttu úr keppni. Seferovic var markahæstur á mótinu.
Athugasemdir