Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. febrúar 2019 17:45
Elvar Geir Magnússon
Pro Piacenza sparkað úr deildinni eftir 20-0 tapið
Mynd: Twitter
Pro Piacenza hefur verið vísað úr ítölsku C-deildinni en þetta var opinberað í dag.

Félagið hefur verið í miklum vandræðum fjárhagslega og leikmenn liðsins hafa ekki fengið borgað á tímabilinu.

Í gær fékk félagið þau skilaboð að það þyrfti að spila gegn Cuneo eða vera vísað úr deildinni. Piacenza mætti með sjö leikmenn og 19 ára fyrirliði liðsins var skráður þjálfari.

Cuneo vann 20-0 sigur en þrátt fyrir að hafa spilað leikinn hefur Piacenza verið vísað úr deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner