Stjarnan hefur framlengt samning sinn við Heiðar Ægisson um þrjú ár en fyrri samningur hans átti að renna út í október.
Heiðar, sem er uppalinn Stjörnumaður, spilaði ellefu leiki í Pepsi-deildinni í sumar áður en hann meiddist og fór síðan út til Bandaríkjanna í skóla.
Hinn 23 ára gamli Heiðar hefur aðallega spilað sem hægri bakvörður hjá Stjörnunni á ferli sínum.
Bikarmeistarar Stjörnunnar hafa verið með pennann á loftinu í vikunni en þriðjudaginn framlengdi Guðjón Baldvinsson samning sinn

Stjarnan hefur samið við Heiðar Ægisson til næstu þriggja ára. Heiðar hefur verið Stjörnunni geysilega mikilvægur á undanförnum árum. Það er stjórn knattspyrnudeildar mikið fagnaðarefni að Heiðar skuli framlengja við félagið enda fer þar uppalinn Stjörnumaður með blátt hjarta! pic.twitter.com/am751olt1M
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) September 20, 2018
Athugasemdir