Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. janúar 2023 00:41
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmót kvenna: Annar sigur Fjölnis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 2 - 4 Fjölnir
0-1 Anna María Bergþórsdóttir ('9 )
1-1 Þórkatla María Halldórsdóttir ('24 )
1-2 Aníta Björg Sölvadóttir ('68 )
1-3 Harpa Sól Sigurðardóttir ('90 )
1-4 Adna Mesetovic ('90 )
2-4 Lovísa Guðrún Einarsdóttir ('90 )

Fjölnir er á toppnum í B-riðli Reykjavíkurmóts kvenna með sex stig eftir að hafa unnið ÍR, 4-2, í Egilshöllinni í kvöld.

Anna María Bergþórsdóttir kom Fjölni yfir á 9. mínútu en ÍR-ingar jöfnuðu er Þórkatla María Halldórsdóttir kom boltanum í netið á 24. mínútu.

Fjölnir komst aftur í forystu á 68. mínútu með marki frá Anítu Björgu Sölvadóttur og tókst Fjölnisstelpunum að bæta við tveimur til viðbótar er Harpa Sól Sigurðarsdóttir og Adna Mesetovic skoruðu undir lok leiks.

Lovísa Guðrún Einarsdóttir náði í eitt sárabótarmark fyrir ÍR áður en flautað var til leiksloka.

Fjölnir er eins og áður segir með 6 stig en ÍR er án stiga. Fjölnir og Þróttur mætast í næstu viku en eitt er víst, annað liðið mun fara í úrslitaleikinn gegn Val eða Víkingi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner