Wayne Rooney og Rio Ferdinand eru sammála um að þeir vilji frekar sjá Manchester City vinna ensku úrvalsdeildina heldur en Liverpool.
Liverpool er á toppi deildarinnar sem stendur með tveggja stiga forystu á Man City, sem er ríkjandi meistari og á leik til góða.
„Ég er ánægður að vera ekki á landinu þegar þessi tvö félög eru að berjast um titilinn. Ég vona að Man City vinni þetta frekar en Liverpool. Ég get ekki séð Liverpool vinna, það yrði martröð fyrir alla stuðningsmenn Everton," sagði Rooney við talkSPORT.
„Ég man þegar Liverpool vann Meistaradeildina 2005, þeir eru ennþá að tala um það í dag. Ef þeir vinna deildina þá getum við búist við að þeir tali um það í 10 eða 15 ár í viðbót."
Ferdinand, sem er ekki stuðningsmaður Everton, tók í svipaða strengi.
„Þetta er það versta sem gat gerst fyrir stuðningsmenn Man United. Hvað þá stuðningsmann sem þarf að fjalla um titilbaráttuna í sjónvarpi! Skárri kosturinn af tveimur slæmum er Manchester City," sagði Ferdinand við Mirror.
„Það er fólk byrjað að tjá sig sem ég vissi ekki einu sinni að héldi með Liverpool. Fólk sem hefur ekki tjáð sig í 20 ár og ætlaði að bíða þar til liðið ynni titil. Núna er þetta fólk byrjað að tjá sig þrátt fyrir að titillinn sé ekki kominn í hús, það væri mjög slæmt að sjá það gerast."
Liverpool hefur ekki unnið efstu deild á Englandi í 29 ár. Titill í ár yrði sá nítjándi í sögunni. Man Utd er sigursælasta lið sögunnar með tuttugu titla.
Liverpool á næst heimaleik gegn Tottenham 31. mars. Man City heimsækir Fulham degi fyrr.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 34 | 24 | 5 | 5 | 82 | 26 | +56 | 77 |
2 | Man City | 33 | 23 | 7 | 3 | 80 | 32 | +48 | 76 |
3 | Liverpool | 34 | 22 | 8 | 4 | 75 | 34 | +41 | 74 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Man Utd | 33 | 16 | 5 | 12 | 51 | 50 | +1 | 53 |
7 | Newcastle | 33 | 15 | 5 | 13 | 69 | 54 | +15 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 32 | 13 | 8 | 11 | 61 | 57 | +4 | 47 |
10 | Bournemouth | 34 | 12 | 9 | 13 | 49 | 60 | -11 | 45 |
11 | Brighton | 33 | 11 | 11 | 11 | 52 | 54 | -2 | 44 |
12 | Wolves | 34 | 12 | 7 | 15 | 46 | 54 | -8 | 43 |
13 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
14 | Crystal Palace | 34 | 10 | 9 | 15 | 44 | 56 | -12 | 39 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 34 | 11 | 8 | 15 | 36 | 48 | -12 | 33 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 34 | 3 | 7 | 24 | 33 | 92 | -59 | 16 |
Athugasemdir