Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. mars 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fylgjast með samningastöðu Alexander-Arnold
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: EPA
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir frá því í dag að spænska stórveldið Real Madrid sé að fylgjast með samningastöðu Trent Alexander-Arnold hjá Liverpool.

Núgildandi samningur Alexander-Arnold rennur út sumarið 2025 en það eru engar viðræður í gangi sem stendur.

Romano segir að það sé ekki ljóst hvort Liverpool hafi áhuga á að selja eða hvort leikmaðurinn hafi áhuga á að fara annað.

Alexander-Arnold er 25 ára gamall og er uppalinn hjá Liverpool. Þar hefur hann spilað allan sinn feril til þessa og hefur hann spilað alls 302 leiki fyrir félagið.

Enski landsliðsmaðurinn getur bæði spilað sem hægri bakvörður og miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner