Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. júní 2022 19:56
Brynjar Ingi Erluson
Vålerenga kom tvisvar til baka - Viðar Örn ekki með vegna meiðsla
Brynjar Ingi Bjarnason spilaði allan leikinn í vörn Vålerenga
Brynjar Ingi Bjarnason spilaði allan leikinn í vörn Vålerenga
Mynd: Vålerenga
Norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga er komið áfram í 32-liða úrslit norska bikarsins eftir 4-3 sigur á Brumunddal.

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var í vörn Vålerenga sem lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleiknum en fékk gagnrýni fyrir varnarleik sinn í báðum mörkunum.

Úrvalsdeildarliðið náði að jafna leikinn í þeim síðari áður en Brumenddal tók forystuna á nýjan leik.

Vålerenga skoraði tvö til viðbótar og náði að afstýra niðurlægingu gegn C-deildarliðinu og vann 4-3 sigur.

Viðar Örn Kjartansson var ekki í leikmannahópnum hjá Vålerenga en hann er að glíma við smávægileg meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner