Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maguire skilur ekki Ben White - „Stærsti heiðurinn að spila fyrir þjóðina"
Mynd: Getty Images

Ben White bakvörður Arsenal hafnaði tækifærinu að vera í enska landsliðshópnum í vikunni.


Hann hefur ekki verið í hópnum síðan á HM í Katar en hann var sendur heim þá eftir að hafa rifist við aðstoðarþjálfara landsliðsins.

Harry Maguire miðvörður Man Utd og enska landsliðsins segir það mikinn heiður að spila fyrir landsliðið.

„White er frábær fótboltamaður. Hann æfði mjög vel en ég veit hreinlega ekki smáatriðin hvers vegna hann vill ekki vera í hópnum í augnablikinu," sagði Maguire.

England mætir Brasilíu í æfingaleik á Wembley í kvöld. 


Athugasemdir
banner
banner