Argentíski markvörðurinn Willy Caballero hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Chelsea, þetta var staðfest í gær.
Hann kom til Chelsea sumarið 2017 og er varamarkvörður liðsins, Spánverjinn Kepa Arrizabalaga er markvörður númer eitt.
Caballero er 37 ára gamall og hefur leikið á Englandi frá árinu 2014, þá kom hann til Manchester City frá Malaga á Spáni.
„Ég er mjög ánægður með að vera áfram hér og vonandi getum við gert ennþá betur á næsta tímabili, það var alls ekki erfið ákvörðun fyrir mig að vera áfram hjá jafn stóru félagi og Chelsea," sagði Caballero eftir undirskriftina í gær.
Athugasemdir