Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 23. maí 2019 10:30
Elvar Geir Magnússon
Saul Niguez áfram hjá Atletico Madrid
Saul Niguez.
Saul Niguez.
Mynd: Getty Images
Spænska blaðið Marca greinir frá því að Saul Niguez verði áfram í herbúðum Atletico Madrid.

Saul var orðaður við bæði Manchester City og Manchester United en Atletico mun halda honum í sínum röðum fyrir næsta tímabil.

Þessi 24 ára miðjumaður skrifaði undir átta ára samning við Atletico á síðasta ári. Í samningnum er 150 milljóna evra riftunarákvæði.

Saul hefur spilað sextán landsleiki fyrir Spán og er algjör lykilmaður hjá Atletico. Hann hefur unnið fimm titla með félaginu.

Antoine Griezmann, Diego Godin, Juanfran Torres og Lucas Hernandez eru allir á förum frá Atletico en Saul verður áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner