Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. mars 2024 23:54
Brynjar Ingi Erluson
Meiðsli Maguire ekki talin alvarleg
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Varnarmaðurinn Harry Maguire dró sig úr landsliðshópi Englands í dag en meiðslin eru ekki talin vera af alvarlegum toga.

Maguire spilaði í 1-0 tapi Englands gegn Brasilíu um helgina, en hann verður ekki með í seinni leiknum gegn Belgíu sem fer fram á þriðjudag.

Hann, Kyle Walker og Sam Johnstone yfirgáfu allir enska landsliðshópinn í dag og fóru aftur til félaga sinna til að huga að meiðslum sínum.

Fabrizio Romano segir á X að meiðsli Maguire eru smávægileg en hann mun fara í myndatöku á næstu dögum.

Maguire hefur verið fastamaður í vörn United á tímabilinu en vonast er til þess að hann verði klár í leik liðsins gegn Brentford næstu helgi, í versta falli gegn Chelsea þann 5. apríl.
Athugasemdir
banner
banner