Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. apríl 2019 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man City hafði betur á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Man Utd 0 - 2 Man City
0-1 Bernardo Silva ('54)
0-2 Leroy Sane ('66)

Slagurinn um Manchester fór fram fyrr í kvöld á Old Trafford og var staðan markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.

Gæðamunur liðanna var þó augljós og gerði Bernardo Silva fyrsta mark leiksins skömmu eftir leikhlé. Markið skoraði hann eftir að hafa fengið of mikið pláss við vítateigslínuna, Luke Shaw réði ekki við hann einn síns liðs og fékk ekki aðstoð.

Leroy Sane kom inn fyrir Fernandinho sem hafði farið útaf meiddur og tvöfaldaði forystu Man City eftir frábæran undirbúning frá Raheem Sterling. Sane skaut föstu skoti beint á David de Gea sem varði boltann í netið.

Jesse Lingard klúðraði dauðafæri fyrir Man Utd og fengu bæði lið færi til að bæta mörkum við en inn fór boltinn ekki. Verðskuldaður sigur Man City sem endurheimtir toppsæti ensku úrvalsdeidlarinnar af Liverpool.

Man Utd er sem fyrr í sjötta sæti, þremur stigum frá Chelsea í Meistaradeildarsæti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner