Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. apríl 2019 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pamela Anderson og Marseille í rifrildum
Mynd: Getty Images
Pamela Anderson og Adil Rami, franskur varnarmaður Marseille, hafa verið í sambandi í rúmlega tvö ár.

Þau voru mætt á goðgerðarkvöld Marseille á þriðjudagskvöldið þar sem var verið að safna pening fyrir bágstödd börn í Marseille.

Á ákveðnum tímapunkti kom í ljós að 100 þúsund evrur sem söfnuðust hafi runnið í endurbyggingasjóð fyrir Notre-Dame dómkirkjuna og var Pamela Anderson ekki sátt með þær fregnir.

Hún kvartaði og gekk svo út af kvöldinu ásamt Rami. Marseille hefur gefið út stutta yfirlýsingu vegna málsins sem er skot í átt að Pamelu.

„Marseille vill þakka öllum þeim rausnarlegu einstaklingum sem aðstoðuðu við fjáröflunina - hópur af fólki sem Pamela Anderson tilheyrir ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner