Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. júní 2019 15:15
Elvar Geir Magnússon
Jack Clarke í læknisskoðun hjá Tottenham
Jack Clarke.
Jack Clarke.
Mynd: Getty Images
Jack Clarke er í læknisskoðun hjá Tottenham í London.

Tottenham hefur náð samkomulagi við Leeds um 10 milljóna punda kaupverð á þessum 18 ára vængmanni.

Clarke blómstraði undir Marcelo Bielsa hjá Leeds og lék 25 leiki á liðnu tímabili.

Clarke verður fyrsti leikmaðurinn sem Pochettino kaupir til Tottenham síðan í janúar 2018!

Sportsmail segir að Leeds muni fá prósentur af mögulegum framtíðarsölum Clarke.

Clarke verður væntanlega formlega kynntur sem leikmaður Tottenham síðar í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner