Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. mars 2024 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kane snýr aftur á heimavöll Tottenham í sumar
Harry Kane.
Harry Kane.
Mynd: Getty Images
Harry Kane mun snúa aftur í fyrsta sinn til Tottenham í sumar þegar Bayern München leikur þar æfingaleik við Spurs.

Kane yfirgaf Tottenham í sumar eftir að hafa alist þar upp og leikið nánast allan sinn feril þar. Hann fór yfir til Bayern þar sem hann hefur haldið áfram að raða inn mörkum.

Æfingaleikurinn á milli þessara liða fer fram 10. ágúst á stórglæsilegum heimavelli Tottenham.

Það verður örugglega vel tekið á móti Kane þar sem hann er ein stærsta goðsögn í sögu Spurs.

Eric Dier mun þá líka snúa á sinn gamla heimavöll en hann gekk í raðir Bayern frá Tottenham í janúar síðastliðnum.
Athugasemdir
banner
banner