Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. september 2019 21:03
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Nottingham Forest á toppinn
Cairney skoraði eitt úrvalsdeildarmark á síðustu leiktíð.
Cairney skoraði eitt úrvalsdeildarmark á síðustu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Sammy Ameobi og félagar fagna gegn Stoke.
Sammy Ameobi og félagar fagna gegn Stoke.
Mynd: Getty Images
Fulham lagði Wigan að velli í kvöld og kom sér þannig upp í sjöunda sæti Championship deildarinnar.

Heimamenn í Fulham voru við algjöra stjórn og virtist aðeins eitt lið vera á vellinum. Staðan var þó markalaus í hálfleik.

Joe Bryan breytti því í upphafi síðari hálfleiks og innsiglaði Tom Cairney sigurinn með marki undir lokin.

Fulham er því komið með fimmtán stig eftir níu umferðir.

Fulham 2 - 0 Wigan
1-0 Joe Bryan ('47)
2-0 Tom Cairney ('83)

Slæmt gengi Stoke City hélt þá áfram er liðið tapaði fyrir Nottingham Forest á heimavelli.

Heimamenn í Stoke voru mun betri í leiknum en leyfðu gestunum þó að skora þrjú mörk og taka stigin með sér heim.

Lee Gregory kom Stoke yfir snemma leiks og jafnaði Joe Lolley fyrir leikhlé.

Sammy Ameobi og Lewis Grabban skoruðu í seinni hálfleik og tókst heimamönnum ekki að svara fyrr en undir lokin, þegar James McClean minnkaði muninn á 85. mínútu.

Stoke er aðeins með tvö stig eftir níu fyrstu leiki tímabilsins. Þetta var hins vegar þriðji sigur Nottingham í röð og er liðið komið á topp deildarinnar.

Stoke 2 - 3 Nottingham
1-0 Lee Gregory ('10)
1-1 Joe Lolley ('36)
1-2 Sammy Ameobi ('48)
1-3 Lewis Grabban ('61)
2-3 James McClean ('85)
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 45 27 9 9 80 41 +39 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 QPR 45 14 11 20 45 57 -12 53
17 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
18 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner
banner