Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. nóvember 2017 14:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi að rúlla upp kosningu á Sky Sports
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson skoraði magnað mark þegar Everton mætti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Markið dugði ekki til sigurs þar sem Everton tapaði leiknum 4-1, en markið var þrátt fyrir það einstaklega stórkostlegt.

Þetta var fyrsta deildarmark Gylfa fyrir Everton.

Hann fór illa með varnarmann Southampton áður en hann hlóð í skotið, sem fór í slána, stöngina, aftur í slána og síðan inn.

Markið má sjá með því að smella hér.

Sky Sports stendur nú fyrir kosningu á marki helgarinnar í enska boltanum og þeirri kosningu er Gylfi að rúlla upp. Þegar þessi frétt er skrifuð er hann kominn með 54% atkvæða!

Smelltu hér til að taka þátt í kosningunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner