Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 30. september 2019 12:09
Elvar Geir Magnússon
Guardiola: Mun ekki fremja sjálfsmorð ef við vinnum ekki
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, notaði sérstakt orðalag þegar hann var að tala niður mikilvægi þess að City vinni Meistaradeildina í fyrsta sinn.

Manchester City mætir Dinamo Zagreb annað kvöld.

Oft er talað um að Guardiola geti ekki talist hafa náð markmiðum sínum hjá City nema hann nái að vinna Meistaradeildina hjá félaginu.

„Ég vil vinna þetta mót en ef það gerist ekki þá breytist líf mitt ekkert. Ég mun ekki drapa mig," segir Guardiola.

„Auðvitað munum við reyna að vinna þetta. Ég verð ánægðari ef við gerum það en ef það tekst ekki reynum við aftur á næsta ári."
Athugasemdir
banner
banner
banner