Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 31. júlí 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Franski Ofurbikarinn: Messi, Neymar og Ramos á skotskónum
Mynd: EPA
PSG 4-0 Nantes
1-0 Lionel Messi ('22 )
2-0 Neymar ('45 )
3-0 Sergio Ramos ('57 )
4-0 Neymar ('82 )

Paris Saint Germain vann franska Ofurbikarinn í dag en hann fór fram í Ísrael annað árið í röð.

PSG mætti Nantes sem varð bikarmeistari eftir sigur á Nice á síðustu leiktíð.

Lionel Messi sem skoraði aðeins 11 mörk á síðustu leiktíð kom PSG yfir og Neymar bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks.

Sergio Ramos var mikið frá vegna meiðsla á síðustu leiktíð en hann var mættur í byrjunarliðið í dag. Hann kom liðinu í 3-0 áður en Neymar gulltryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.


Athugasemdir
banner
banner