Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. janúar 2019 18:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta er alvöru Manchester United"
Mynd: Getty Images
„Við vorum að vinna gegn frábæru fótboltaliði," sagði David de Gea, markvörður Manchester United, eftir 1-0 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

„Við stjórnuðum fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleiknum áttu þeir færi. Þetta var frábær leikur."

De Gea setti persónulegt met í leiknum.

„Ég man ekki allar vörslunar og get því ekki valið þá bestu. Stjórinn hefur komið inn með gleði, leikmennirnir eru að spila mjög vel og liðið er sterkt. Þetta er alvöru Manchester United."

Marcus Rashford skoraði sigurmark United í leiknum. Hann sagði:

„Þetta var erfiðasti leikurinn síðan Solskjær tók við. Það skiptir ekki málið, við fengum stigin. Við spiluðum öðruvísi kerfi. Þetta er það sem við verðum að gera til að vinna toppliðin."
Athugasemdir
banner
banner
banner