Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. júlí 2019 08:46
Magnús Már Einarsson
Gylfi hitti nafna sinn frá Indónesíu
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins, hitti í gær nafna sinn í Indónesíu.

Ekki er þó um að ræða Íslending heldur ungan dreng í Indónesíu sem var skírður í höfuðið á Gylfa.

Faðir hans, Dex Glennıza, er mikill aðdáandi Gylfa sem leikmanns og sonur hans fékk nafnið Gylfi Glennıza.

Gylfi Þór gifti sig í dögunum og er að njóta síðustu dagana í fríi í Indónesíu áður en undirbúningstímabilið hefst með Everton.

Hér að neðan má sjá Gylfana sátta saman í Indónesíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner