Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 19:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Adam Ingi upp um deild - Bjarni skoraði framhjá honum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Björgvin Magnússon sat allan tímann á bekknum þegar Levadiakos vann svakalegan endurkomusigur á OFI Crete í grísku deildinni í dag.

Crete var með 2-0 forystu eftir 37 mínútur en missti mann af velli með rautt spjald stuttu síðar. Það stefndi í sigur Crete en Levadiakos skoraði þrjú mörk í uppbótatíma en sigurmarkið kom á tíundu mínútu í uppbótatímanum.

Hjörtur Hermannsson spilaði fyrri hálfleikinn þegar Volos tapaði 2-1 gegn Aris. Levadiakos er í 5. sæti með 31 stig fyrir lokaumferðina en Volos er í 6. sæti með 17 stig. Venjulega hefði 5. sætið fengið sæti í Sambandsdeildinni en Crete (7. sæti) vann bikarinn og fær því sæti í Evrópudeildinni og Sambandsdeildarsætið dettur út.

Sverrir Ingi Ingason var ekki í leikmannahópi Panathinaikos sem tapaði 1-0 gegn Olympiakos. Panathinaikos mun enda í 4. sæti og fer því í Sambandsdeildina.

Bjarni Aðalsteinsson skoraði sigurmarkið þegar Roskilde vann AB Kaupmannahöfn 2-1 í C-deildinni í Danmörku. Þetta var fjórða mark Bjarna fyrir liðið. Adam Ingi Benediktsson var í rammanum hjá AB. AB hefur tryggt sér sæti í næst efstu deild en Roskilde á ekki möguleika á að komast upp. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB.
Slapp
banner