Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bayern nær samkomulagi við Gordon
Mynd: EPA
Bayern og Anthony Gordon hafa komist að samkomulagi um kjör leikmannsins hjá félaginu. TalkSport greinir frá þessu.

Bayern er í viðræðum við Newcastle um kaupverð en félögin eru langt frá því að ná samkomulagi. Newcastle vill fá rúmlega 75 milljónir punda fyrir þennan 25 ára gamla enska vængmann.

Það er bjartsýni hjá enska félaginu að Bayern muni samþykkja það verð. Arsenal hefeur einnig á huga á Gordon og þá hefur Liverpool einnig einhvern áhuga en ekki búist við því að félagið muni blanda sér í þessa baráttu.

Gordon á fjögur ár eftir af samningi sínum hjá Newcastle. Hann hefur skorað 17 mörk og lagt upp fimm í öllum keppnum á þessari leiktíð.
Slapp
banner
banner