Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   mán 11. maí 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Villarreal bíður eftir Iñigo Pérez
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Guli kafbáturinn frá Villarreal er í leit að nýjum þjálfara eftir að Marcelino staðfesti yfirvofandi brottför sína úr þjálfarastólnum.

Sextugur Marcelino hefur gert mjög góða hluti við stjórnvölinn hjá Villarreal í tvö og hálft ár en hann vill reyna fyrir sér á nýjum stað.

Inigo Pérez er efstur á óskalista félagsins eftir að hafa gert góða hluti við stjórnvölinn hjá Rayo Vallecano á rúmlega tveimur árum.

Spænskir fjölmiðlar segja að allar líkur séu á því að Pérez verði ráðinn til Villarreal í kringum næstu mánaðamót.

Pérez er sagður vera búinn að samþykkja samningstilboð frá Villarreal en félagaskiptin hafa ekki verið gerð formleg af virðingu við vinnuveitendur hans í stjórn Rayo Vallecano.

Talið er að stjórnendur Vallecano viti þó af áformum Pérez um að yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Pérez stýrir Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar gegn Crystal Palace 27. maí. Liðið er jafnframt í harðri baráttu um evrópusæti í spænsku deildinni.

   05.05.2026 06:00
Kveður eftir að hafa tryggt liðinu sæti í Meistaradeild Evrópu

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 35 19 6 10 58 38 +20 63
5 Betis 35 13 15 7 54 43 +11 54
6 Celta 35 13 11 11 49 44 +5 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Osasuna 35 11 9 15 42 45 -3 42
11 Vallecano 34 10 12 12 35 41 -6 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 35 9 12 14 46 54 -8 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 34 9 11 14 36 51 -15 38
18 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
19 Levante 35 9 9 17 41 57 -16 36
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner
banner