Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   mán 11. maí 2026 09:50
Kári Snorrason
„Stökk bara til þó að einhverjum kóngum hafi fundist það asnalegt“
Bjarki Baldvins og Hallgrímur Mar
Bjarki Baldvins og Hallgrímur Mar
Mynd: Goggarinn
Hallgrímur Mar Steingrímsson, lykilmaður KA, var nokkuð óvænt skráður sem aðstoðarþjálfari á leikskýrslu Völsungs gegn Leikni í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson tóku við Völsungi eftir að ævintýramanninum Patrick De Wilde var sagt upp störfum skömmu fyrir tímabil.

Elfar var í leikbanni því var heyrt í Hallgrími sem var fenginn á bekkinn. Fótbolti.net spurði Hallgrím út í hvernig þetta atvikaðist eftir sigur KA gegn ÍBV í gærdag.

„Tveir af bestu vinum mínum eru að þjálfa þetta núna og ákváðu að heyra í mér því Elfar var í banni. Ég stökk bara til þó að einhverjum kóngum hafi fundist það asnalegt. Mér fannst þetta sjálfsagt mál,“ sagði Hallgrímur.

Hann var spurður hvort að hann hyggðist gera þetta aftur: „Ég veit það ekki. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt en það fer eftir tíma og fleiri þáttum.“

Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"
Slapp
banner