Fyrrum miðjumaðurinn goðsagnakenndi Toni Kroos er mjög hrifinn af hugarfarinu sem Ousmane Dembélé kantmaður Paris Saint-Germain er að sýna hjá félaginu.
Kroos segir að aðrar stórstjörnur ættu að taka sér Dembélé til fyrirmyndar eftir undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Luis Enrique þjálfari skipti Dembélé, sem er af mörgum talinn skærasta stjarnan í stjörnum prýddu liði PSG, af velli á 65. mínútu í seinni undanúrslitaleiknum gegn FC Bayern.
„Luis Enrique tók besta leikmanninn sinn af velli á 65. mínútu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og enginn kvartaði. Hann yfirgaf völlinn, tók í höndina á þjálfaranum, settist á bekkinn og hvatti liðsfélaga sína áfram heilshugar," sagði Kroos við Marca.
„Hann öskraði á liðsfélaga sína að halda áfram að berjast sitjandi á bekknum. Þetta er ekki það sem 90% af leikmönnum sem halda að þeir séu stórstjörnur gera. Þeir byrja að sýna neikvæða líkamstjáningu á vellinum og setjast svo fúlir á bekkinn án þess að taka meiri þátt í leiknum."
Dembélé vann Ballon d'Or í fyrra eftir að hafa hjálpað PSG að vinna allar mögulegar keppnir að undanskildu HM félagsliða. Hann er 28 ára gamall og fer með Frakklandi á HM í sumar.




