Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   mán 11. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Framherji Inter velur Fílabeinsströndina
Mynd: Inter
Mynd: EPA
Ange-Yoan Bonny framherji Inter er búinn að samþykkja að spila fyrir landslið Fílabeinsstrandarinnar eftir að hafa leikið fyrir yngri landslið Frakklands.

Bonny er 22 ára gamall og skoraði 6 mörk í 19 leikjum fyrir yngri landslið Frakklands. Hann er fæddur í Frakklandi en á ættir að rekja til Fílabeinsstrandarinnar.

Landslið Fílabeinsstrandarinnar verður sífellt sterkara eftir að Amad Diallo og Yan Diomande völdu einnig að spila fyrir það. Diallo er byrjunarliðsmaður hjá Manchester United á meðan Diomande er einn af eftirsóttari bitum leikmannamarkaðsins.

Diomande hefur verið að gera frábæra hluti með RB Leipzig þar sem hann er með 12 mörk og 7 stoðsendingar í 32 deildarleikjum á tímabilinu.

Diallo er 23 ára gamall á meðan Diomande er ekki nema 19 ára. Sóknarlína Fílabeinsstrandarinnar verður ógnvekjandi með þessa þrjá í fremstu víglínu.

Nicolas Pépé, Simon Adingra, Evann Guessand, Franck Kessié, Ibrahim Sangaré og Evan Ndicka eru einnig meðal landsliðsmanna Fílabeinsstrandarinnar og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með liðinu á HM í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem Fílabeinsströndin kemst á lokamót HM síðan 2014.

Þess má geta að Elye Wahi hefur líka valið að spila fyrir Fílabeinsströndina.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner