Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. apríl 2019 12:17
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Crystal Palace og Man City: Fernandinho ekki í hóp
Fernandinho er einn af mikilvægustu leikmönnum Man City.
Fernandinho er einn af mikilvægustu leikmönnum Man City.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace tekur á móti Manchester City í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Mikið er undir hjá Englandsmeisturunum sem þurfa sigur til að endurheimta toppsæti deildarinnar.

Leikurinn verður flautaður á eftir innan við klukkustund og hafa byrjunarliðin því verið staðfest. Pep Guardiola gerir fjórar breytingar á liðinu sem tapaði 1-0 gegn Tottenham í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Benjamin Mendy og Vincent Kompany koma inn í varnarlínuna fyrir Fabian Delph og Nicolas Otamendi og þá koma Kevin De Bruyne og Leroy Sane inn fyrir Fernandinho og Riyad Mahrez.

Mendy er að spila sinn fyrsta leik í hálft ár en tími hans hjá Man City hefur einkennst af miklum meiðslavandræðum.

Það er lítið sem kemur á óvart í byrjunarliði Crystal Palace sem siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar, ellefu stigum fyrir ofan fallsvæðið. Christian Benteke byrjar þó í stað Michy Batshuayi í fremstu víglínu ásamt Andros Townsend og Wilfried Zaha.

Crystal Palace: Guaita, Wan-Bissaka, Kelly, Dann, Van Aanholt, McArthur, Milivojevic, Schlupp, Townsend, Benteke, Zaha
Varamenn: Hennessey, Meyer, Ward, Sako, Kouyate, Ayew, Batshuayi

Man City: Ederson, Walker, Kompany, Laporte, Mendy, Gundogan, D.Silva, De Bruyne, Sane, Sterling, Aguero
Varamenn: Muric, Stones, Danilo, Otamendi, B.Silva, Mahrez, Jesus
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner