Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   fim 14. maí 2026 07:55
Elvar Geir Magnússon
PSG innsiglar fimmta meistaratitilinn í röð
Khvicha Kvaratskhelia skoraði gegn Lens.
Khvicha Kvaratskhelia skoraði gegn Lens.
Mynd: EPA
Paris St-Germain hefur verið krýnt franskur meistari í fjórtánda sinn og í fimmta sinn í röð eftir 2-0 útisigur gegn keppinautum sínum í Lens.

Lens var sex stigum á eftir PSG fyrir viðureign liðanna í gær og PSG nægði jafntefli til að innsigla meistaratitilinn. Liðið gerði betur en það og vann tveggja marka sigur með mörkum Khvicha Kvaratskhelia og varamannsins Ibrahim Mbaye.

Tvær umferðir eru eftir af frönsku deildinni.

„Á þessum þremur árum sem ég hef verið hérna er þessi deildarmeistaratitill sætastur, það var erfiðast að vinna hann," segir Luis Enrique sem tók við PSG 2023.

PSG hefur orðið Frakklandsmeistari oftar en nokkuð annað lið, tólf sinnum á síðustu fjórtán árum. Liðið mætir Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þann 30. maí og á þar titil að verja.

Lens á enn möguleika á titli á tímabilinu en liðið leikur bikarúrslitaleik gegn Nice þann 22. maí.



Slapp
banner
banner