Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. mars 2024 20:47
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörk Íslands: Stórglæsileg aukaspyrna Alberts
Icelandair
Albert skoraði frábært mark
Albert skoraði frábært mark
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu tvö frábær mörk til að koma Íslandi í 2-1 gegn Ísrael í undanúrslitum í umspili Evrópumótsins í kvöld, en mörkin komu með þriggja mínútna millibili.

Lestu um leikinn: Ísrael 1 -  4 Ísland

Albert var að snúa aftur í landsliðshópinn eftir margra mánaða fjarveru.

Sóknarmaðurinn hefur verið frábær með Genoa í Seríu A og tók hann það gengi með sér inn í verkefnið. Hann jafnaði metin úr aukaspyrnu á 39. mínútu, þar sem hann lyfti boltanum yfir vegginn og efst í hægra hornið.



Arnór Ingvi skoraði aðeins þremur mínútum síðar eftir hornspyrnu. Albert kom með boltann á nærstöngina á Sverri Inga Ingason, sem skallaði boltann aftur fyrir sig í hlaupaleið Arnórs Ingva. Hann átti fínasta skot sem fór af varnarmanni og í netið.


Athugasemdir
banner
banner
banner