Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hjólhestaspyrna McTominay á nýjum peningaseðli í Skotlandi
Mynd: Bank of Scotland
Nýr 20 punda seðill hefur, í takmörkuðu upplagi, verið gefinn út af Bank of Scotland og á seðlinum er mynd af Scott McTominay og hjólhestaspyrnu hans gegn Danmörku í undankeppni HM í vetur.

Seðillinn fór í prent í tilefni af því að Skotland tekur í sumar þátt í HM í fyrsta sinn síðan 1998.

Einungis 100 seðlar með myndinni af McTominay hafa verið prentaðir, 50 af þeim verða í boði á góðgerðaruppboðum og í ýmsum lukkupottum.



McTominay skoraði fyrsta markið í 4-2 sigri Skota á Dönum og var það með hjólhestaspyrnunni frægu. Sigurinn tryggði Skotum sæti á HM.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner