Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sá yngsti í sögu Newcastle skrifar undir langtímasamning
Mynd: EPA
Hinn tvítugi Lewis Miley hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við Newcastle og er nú samningsbundinn fram á sumarið 2032.

Hann er uppalinn hjá félaginu og er yngsti leikmaður í sögu þess til að spila og skora í bæði úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.

Hann kom við sögu í 34 leikjum á tímabilinu og hefur nú alls leikið 80 leiki fyrir félagið.

„Ég er mjög ánægður með að skrifa undir þennan nýja samning og skuldbinda mig til framtíðar hér. Það er draumur að spila fyrir Newcastle United, svo þetta er stolt stund fyrir mig."

„Ég er mjög þakklátur öllum sem hafa lagt sitt af mörkum til að hjálpa mér að komast þangað sem ég er í dag, sérstaklega stuðning fjölskyldu minnar og traustið sem félagið hefur sýnt mér frá unga aldri.

„Þetta hefur verið ótrúleg ferð hingað til og ég er svo spenntur fyrir því sem framundan er. Ég vinn nú hörðum höndum á hverjum degi til að komast aftur á völlinn,"
segir Miley sem meiddist snemma í maí og missti af síðustu leikjum tímabilsins.
Slapp
banner