Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   fös 16. maí 2008 12:37
Magnús Már Einarsson
Landsbankadeildin: Leikmaður 2.umferðar - Pálmi Rafn (Valur)
Pálmi Rafn fagnar marki gegn Grindavík ásamt Bjarna Ólafi Eiríkssyni, einkaþjálfara og liðsfélaga sínum.
Pálmi Rafn fagnar marki gegn Grindavík ásamt Bjarna Ólafi Eiríkssyni, einkaþjálfara og liðsfélaga sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason miðjumaður Vals fór á kostum í 3-0 sigri liðsins á Grindavík í annarri umferð Landsbankadeild karla. Pálmi Rafn skoraði öll mörk Valsmanna og er leikmaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net.

Pálmi Rafn Pálmason
Pálmi Rafn er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en árið 2003 gekk hann til liðs við KA. Þessi 23 ára gamli leikmaður gekk síðan í raðir Valsmanna árið 2006 og hefur verið lykilmaður hjá liðinu síðan þá. Pálmi Rafn hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og á þessu ári lék hann sína fyrstu A-landsleiki.
,,Þrátt fyrir þrjú mörk var spilamennska mín ekkert óaðfinnanleg en þetta er samt kannski einn af mínum betri leikjum með Val," sagði Pálmi Rafn við Fótbolta.net í dag.

Valsmenn komu sterkir til baka gegn Grindavík eftir tap í fyrstu umferð gegn Keflavík en þar tapaði liðið óvænt 5-3.

,,Þetta var algjör snilld. Það var ömurlegt að tapa þessum fyrsta leik þannig að það var gríðarlega gott fyrir okkur að koma svona til baka í þessum leik. Það var mjög mikilvægt."

,,Við stefnum eins hátt og við getum. Við ætlum auðvitað að reyna að vera í toppbaráttunni, það er engin spurning. Við ætlum að berjast um titilinn."

Pálmi Rafn kann vel við sig gegn Grindavík en hann skoraði einnig bæði mörk Vals í 2-1 sigri liðsins á Grindavík á Laugardalsvelli sumarið 2006.

,,Mér virðist líða ágætlega þegar ég spila á móti Grindavík. Ég spila nú sennilega ekki aftur á móti Grindavík á Laugardalsvelli en mér hefur liðið ágætlega hingað til," sagði Pálmi Rafn en hann hefur verið í feiknaformi í vor.

,,Ég hef sjaldan spilað jafnvel og núna. Ég er í góðu formi, búinn að æfa vel í vetur og þegar að það byrjar að ganga vel þá eykst sjálfstraustið og þetta spilar allt saman. Ég hugsa að ég sé í mínu besta formi þessa dagana."

Í vetur æfði Pálmi Rafn vel og eyddi miklum tíma í lyftingasalnum. ,,Ég var að lyfta mjög mikið með Bjarna Ólafi (Eiríkssyni) einkaþjálfara mínum og hann er búinn að hjálpa mér mikið. Við erum búnir að lyfta mikið í vetur og það skiptir miklu máli," sagði Pálmi Rafn en hann telur að Bjarni Ólafur, liðsfélagi sinn, gæti gert það gott sem einkaþjálfari.

,,Ég skil ekki af hverju hann fer ekki út í þetta, ég hugsa að hann myndi þéna vel á þessu," sagði Pálmi léttur í bragði.

Undanfarin ár hefur Pálmi Rafn nokkrum sinnum farið til erlendra liða á reynslu en hann hugsar lítið um atvinnumennskuna þessa dagana.

,,Það kemur upp ef það á að koma upp. Ég er svo sem ekkert að spá í það núna. Ég einbeiti mér að því að reyna að spila vel og ef maður spilar vel er örugglega ágætis möguleiki að maður fái sénsinn. Ef maður fer að einbeita sér of mikið af því, þá missir maður einbeitinguna," sagði Pálmi sem býst við hörkuleik hjá Val á mánudaginn en þá heimsækir liðið Fylki.

,,Þeir koma örugglega alveg geðveikir til leiks og ég hugsa að við getum undirbúið okkur undir mikil slagsmál í Árbænum. Ég hugsa að þetta verði mjög mikil barátta, þetta verður sennilega eins og Árbær-Breiðholt í gamla daga þannig að þetta verður mjög erfitt," sagði Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður 2.umferðar, að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 1.umferðar - Tryggvi Guðmundsson (FH)
Athugasemdir
banner
banner
banner