Vivio, Fótbolti.net og Macland gefa nýjan iPhone 6s
Glæsileg verðlaun fyrir flottasta fótboltamyndbandið!
Vivio í samstarfi við Fotbolti.net og Macland efna til keppni um flottasta fótboltamyndbandið í Vivio-appinu. Í verðlaun fyrir fyrsta sætið er iPhone 6s og annað og þriðja sætið fá pizzaveislu frá Eldsmiðjunni og bíómiða frá Myndform.
Vivio er glænýr afþreyingar- og samfélagsmiðill fyrir íslenska fótboltann sem heldur utan um myndefni sem almennir félagsmenn og aðilar á vegum knattspyrnufélaganna gera af starfinu, upptökur leikja, félagsstarf, beinar útsendingar og stutt myndskeið.
Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt er að pósta fótboltatengdu myndbandi inn á Vivio-appið með frjálsri aðferð. Þú nærð í Vivio á www.Vivio.tv eða í Appstore/Playstore og byrjar að taka upp, hver og einn má senda inn eins mörg myndbönd og hann vill.
Dómnefnd sem samanstendur af Hallberu Gísladóttur, Fanndísi Friðriksdóttur og Sigga Hlö mun svo velja fimm bestu myndböndin og þau verða kynnt föstudaginn 16. september.
Það verða svo notendur Vivio sem velja vinningshafann úr þessum fimm, en sá sem á myndbandið sem fær flest „læk“ inni í Vivio-appinu, vikuna 16.–23. september, vinnur iPhone 6s. Í önnur verðlaun eru svo 20 þúsund króna gjafabréf frá Eldsmiðjunni og þriðja sætið fær 6 bíómiða frá Myndform.
Á Facebook síðu Vivio eru svo veitt aukaverðlaun á hverjum virkum degi fyrir myndband dagsins, þannig að fylgist vel með og byrjið að taka upp!


