Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. júní 2019 15:54
Ívan Guðjón Baldursson
Kwame lánaður til Víkings út leiktíðina (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. er búið að staðfesta lánssamning Kwame Quee sem mun leika fyrir félagið út leiktíðina. Hann er landsliðsmaður Sierra Leone og leikur framarlega á miðjunni.

Kwame kemur að láni frá Blikum þar sem tækifærin hafa verið af skornum skammti. Kwame er búinn að gera eitt mark í einum bikarleik á tímabilinu og hefur einu sinni fengið að spila í Pepsi Max-deildinni.

Hann var upprunalega fenginn til félagsins eftir að hafa staðið sig vel með Víkingi Ólafsvík í Inkasso-deildinni. Þar skoraði hann 14 mörk í 25 leikjum í fyrra.

Hann gæti orðið liðsstyrkur fyrir Víking sem hefur verið að spila skemmtilegan sóknarbolta og leikir liðsins einkennst af taumlausri markaskorun.




Athugasemdir
banner
banner
banner