Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   lau 17. ágúst 2019 20:45
Arnar Helgi Magnússon
Anna María: Sjáumst hinum megin við brúnna!
Kvenaboltinn
Anna María í leiknum í kvöld.
Anna María í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Selfyssinga, var kampakát eftir sigur liðsins á KR í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Selfoss 2 -  1 KR

„Þetta var hörkuleikur og erfiður leikur að spila. Það var mikið rok á vellinum og KR liðið var bara helvíti sterkt," sagði Anna eftir leikinn.

„Mér leið vel síðustu mínúturnar en kannski fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik og framlengingu leið okkur ekkert alltof vel. Við vorum að venjast því að spila með rokið í andlitið og þetta var bara helvíti erfitt til að byrja með."

Anna María er fyrirliði liðsins og segir hún það vera heiður.

„Þvílík forréttindi. Ég er þakklát fyrir hvern leik sem ég fæ að leiða liðið mitt út á völlinn."

Selfyssingar ætla að fagna vel í kvöld og Anna María er engin undantekning þar.

„Við sjáumst hinum megin við brúnna," sagði Anna að lokum.

Nánar er rætt við Önnu Maríu í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner