Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 07. ágúst 2019 19:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Tap gegn Porto hjá Jóni Guðna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Krasnodar 0 - 1 Porto
0-1 Sergio Oliveira ('89)

Jón Guðni Fjóluson og félagar hans í rússneska liðinu Krasnodar eru ekki í sérstökum málum í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Krasnodar tók á móti Porto í Rússlandi í dag, en þetta var fyrri leikur liðanna.

Hann var markalaus lengi vel, en á 89. mínútu skoraði miðjumaðurinn Sergio Oliveira sigurmark Porto. Jón Guðni lék síðustu 20 mínúturnar eða svo fyrir Krasnodar.

Seinni leikur liðanna fer fram í Portúgal eftir viku, en þess má geta að Porto fór alla leið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra og tapaði þar fyrir Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner