Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. maí 2020 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórða æfingasvæði City Football Group verður reist í Úrúgvæ
Mynd: Getty Images
Fjórða risaæfingasvæði City Football Group verður í Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ. Æfingasvæðið verður tilbúið á næsta ári ef allt gengur að óskum.

Hin þrjú æfingasvæðin eru stödd í Manchester City, New York City og Melbourne City, sem eru allt félög í eigu City Football Group.

Eignarhaldsfélagið City Football Group keypti Montevideo City Torque fyrir þremur árum og hefur ákveðið að leggja háar upphæðir í uppbyggingu knattspyrnu í borginni.

CFG er einnig meirihlutaeigandi í Yokohama Marinos, Girona, Sichuan Jiuniu og Mumbai City FC og er stöðugt að stækka við sig.

„Reynsla okkar af samskonar verkefnum er trygging fyrir velgengni. Þetta verkefni mun reynast afar jákvætt fyrir Montevideo, Úrúgvæ og Suður-Ameríku í heild sinni," segir Ferran Soriano, framkvæmdastjóri CFG.
Athugasemdir
banner