Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. febrúar 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Barcelona mætir Betis
Mynd: Getty Images
Fimm leikir fara fram í spænska boltanum í dag en stórliðin fara í ferðalag og eiga tvo erfiða útileiki.

Martin Ödegaard og félagar í Real Sociedad mæta Athletic Bilbao en þessi tvö lið gerðu vel á dögunum og sópuðu út stórliðum Barcelona og Real Madrid í spænska bikarnum.

Madrídingar á meðan heimsækja Osasuna í dag á meðan Barcelona fer í heimsókn til Sevilla-borgar og spilar við Real Betis.

Leikir dagsins:
11:00 Espanyol - Mallorca (Stöð 2 Sport)
13:00 Real Sociedad - Athletic (Stöð 2 Sport 4)
15:00 Osasuna - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Celta - Sevilla (Stöð 2 Sport 2)
20:00 Betis - Barcelona (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner