Hinn sextán ára gamli Mezian Mesloub var hetja Lens á föstudaginn og tryggði liðinu sæti í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með sínum fyrstu snertingum fyrir meistaraflokk liðsins.
Mesloub kom inn á 78. mínútu þegar Lens átti innkast og skoraði fimm sekúndum síðar.
Þetta reyndist sigurmarkið á heimavelli gegn Nantes og tryggja stigin þrjú Lens þátttökurétt í Meistaradeildinni í annað sinn í rúmlega 20 ár og fjórða sinn frá stofnun keppninnar árið 1992.
Mezian Mesloub er sonur Walid Mesloub, fyrrum fyrirliða Lens sem lék einnig fyrir alsírska landsliðið.




