Aðalfundur Breiðabliks fór fram í Smáranum í síðustu viku og var Pétur Hrafn Sigurðsson sjálfkjörinn formaður félagsins þar sem hann var sá eini sem bauð sig fram.
Hann tekur við af Ásgeiri Baldurssyni sem hefur gegnt formennsku félagsins frá 2022 en gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Á fundinum var Ásgeir sæmdur gullmerki ÍSÍ og UMSK fyrir störf sín í þágu félagsins og íþróttahreyfingarinnar.
Pétur Hrafn hefur setið í aðalstjórn Breiðabliks frá árinu 2022 en áður gegndi hann formennsku körfuboltadeildar félagsins um árabil.
Jóhann Þór Jónsson gaf kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn félagsins. Ný inn í stjórnina koma Ásgeir Haukur Guðmundsson, Elvar Páll Sigurðsson og María Sæm Bjarkardóttir, sem voru kjörin til tveggja ára.
Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir og Benedikt Sigurðsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu og er þeim þakkað fyrir frábær störf í þágu félagsins. Ingvi Þór Georgsson og Elma Björk Bjartmarsdóttir voru kjörin til tveggja ára á síðasta aðalfundi og sitja því áfram í stjórn.
„Breiðablik hefur vaxið hratt á undanförnum árum og nú er svo komið að aðstaða margra deilda er sprungin. Nauðsynlegt er að huga að uppbyggingu mannvirkja til að mæta áframhaldandi vexti félagsins," sagði Pétur Hrafn.
„Ég hlakka til að taka þátt í þeirri mikilvægu uppbyggingu í góðu samstarfi við Kópavogsbæ og allar deildir félagsins."

