Giovanni Simeone hefur verið meðal allra bestu leikmanna Torino á deildartímabilinu í Serie A þar sem hann er sjötti markahæsti leikmaður deildarinnar með 11 mörk, þar af komu 6 mörk í síðustu 10 leikjum.
Simeone er 30 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi, en ýmis félög hafa áhuga á að klófesta hann í sumar.
Argentínska stórveldið River Plate er sterklega orðað við Simeone sem hóf ferilinn hjá félaginu þegar hann var aðeins 13 ára gamall.
Simeone hefur verið iðinn við markaskorun í ítalska boltanum en hans besta tímabil var 2021-22 þegar hann skoraði 17 mörk í 35 leikjum á láni hjá Verona. Það varð til þess að Napoli keypti hann í sínar raðir og vann Simeone tvo Ítalíumeistaratitla sem varaskeifa í sóknarlínunni þar.
Besiktas hefur einnig verið orðað við Simeone og er talið að Torino sé tilbúið að selja hann fyrir 10 milljónir evra.


