Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 22. júlí 2020 22:48
Sverrir Örn Einarsson
Siggi Höskulds: Sjaldan verið jafn stoltur
Lengjudeildin
Sigurður Höskuldsson þjálfari Leiknis
Sigurður Höskuldsson þjálfari Leiknis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir Reykjavík tók á móti Víkingum frá Ólafsvík í kvöld á Domusnovavellinum í fyrsta leik Víkinga undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Það er óhætt að segja að gestaliðið hafi aldrei séð til sólar þó hún hafi skinið skært í Breiðholtinu í kvöld en lokatölur urðum 5-0 fyrir heimamenn eftir fagmannlega frammistöðu Leiknismanna.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 5 -  0 Víkingur Ó.

„Mér fannst það eiginlega meira en það. Mér fannst við alveg geggjaðir og þvílík breyting frá síðasta leik þar sem við vorum ekki nægjanlega góðir en við fórum vel yfir þann leik og hvernig við nálguðumst hann og sjaldan verið jafn stoltur af viðbrögðunum sem ég fékk frá liðinu í þeim hlutum sem við þurftum að bæta. “Sagði Sigurður Höskuldsson þjálfari Leiknis um leik sinna manna í kvöld er hann mætti í viðtal við fréttaritara að leik loknum.

Heimamenn hófu leikinn af gífurlegum krafti og höfðu til að mynda fengið einhverjar átta hornspyrnur þegar aðeins um tíu mínútur voru liðnar af leiknum.

„Ég fann það bara alla vikuna að við værum að fara að vinna þennan leik. Ég var með rosalega góða tilfinningu fyrir þessu. Leikmennirnir mættu tilbúnir frá fyrstu sekúndu og mér fannst þeir frábærir.“

Brynjar Hlöðversson var ekki með Leiknismönnum í kvöld og líklegt er að hann verði frá í talverðan tíma. Um stöðuna á Brynjari sagði Sigurður.

„Það er hefur ekki komið nein greining á það en hann verður eitthvað frá já.“

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner