,,Þá munum við kaupa 11 menn, nýtt lið, og þá förum við að vinna," grínaðist Auðun Helgason miðvörður Grindavíkur við Fótbolta.net eftir 1-2 tap gegn Fylki í dag.
,,Þetta er gríðarlega súrt. Við erum bara ekki klárir þarna í byrjun og bjóðum upp á þetta með því að spila stutt. Ég spila þarna fáránlegum bolta sem ég á ekki að gera og þess vegna fáum við á okkur mark."
,,Við vorum bara búnir á því síðustu 10. Menn voru þreyttir, við vorum búnir að vinna gríðarlega vel sem lið í 85 mínútur þegar hann skorar. Við áttum erfiðan bikarleik á fimmtudaginn og hann situr svakalega í okkur. Mér fannst þeir bjóða upp á jafntefli og við áttum að taka því."
Nánar er rætt við Auðun í sjónvarpinu að ofan.






















