Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   þri 03. júní 2008 13:16
Magnús Már Einarsson
Landsbankadeildin: Leikmaður 5.umferðar - Gunnleifur Gunnleifs (HK)
Gunnleifur fagnar í gær.
Gunnleifur fagnar í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Úr leiknum í gær.
Úr leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Gunnleifur liggur á vellinum eftir samstuð við frænda sinn Birki Má Sævarsson.
Gunnleifur liggur á vellinum eftir samstuð við frænda sinn Birki Má Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Gunnleifur Gunnleifsson fór á kostum í 4-2 sigri HK á Vals í Landsbankadeild karla í gær. Gunnleifur varði oft á tíðum frábærlega og hann er leikmaður 5.umferðar hér á Fótbolta.net.

Gunnleifur Gunnleifsson
Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson er uppalinn hjá HK. Hann lék með KVA 1996 og eftir að hafa leikið aftur með HK 1997 fór hann í KR þar sem hann lék ellefu leiki 1998 og 1999. Þaðan fór Gunnleifur í Keflavík þar sem hann var aðalamarkvörður 2000 og 2001. Árið 2002 fór hann aftur í HK sem komst þá upp úr 2.deildinni. Hann hefur síðan þá leikið með HK og átti stóran þátt í að liðið hélt sér í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar.
,,Það er þvílíkur léttir að vera kominn með fyrstu stigin í hús eftir mjög góða frammistöðu og verðskuldaðan sigur," sagði Gunnleifur við Fótbolta.net í dag.

,,Ég reyni alltaf að gera mitt besta og skila góðri frammistöðu fyrir félagið og reyni að hjálpa liðinu að vinna leiki. Ég fékk á mig tvö mörk en ég er sæmilega sáttur við mína frammistöðu í gær."

HK hafði fyrir leikinn í gær skorað tvö mörk í fyrstu fjórum leikjunum og það kom Gunnleifi á óvart að liðið náði að skora fjögur mörk gegn Íslandsmeisturunum.

,,Við erum ekki vanir að skora mikið af mörkum en við erum komnir með feykiöflugan senter og vorum að spila fínan sóknarbolta í gær. Við vorum að skapa okkur ágætis sénsa og það var frábært að gera fjögur mörk á móti Íslandsmeisturunum," sagði Gunnleifur en Iddi Alkhag fór á kostum og skoraði þrennu í leiknum.

,,Hann stóð sig frábærlega í gær og gerði þrjú glæsileg mörk. Hann er eldlfjótur og það er nánast að hann vinni mig í sprettum á æfingu," sagði Gunnleifur hlægjandi en hann hrósaði einnig þremur leikmönnum á átjánda aldursári sem voru allir í byrjunarliðinu í gær.

,,Aaron Palomares, Damir Muminovic var að leika sinn fyrsta leik í byrjunarliði og Hólmar Örn sem er framtíðarlandsliðsmaður hjá okkur í vörninni. Þessir strákar eru að spila frábærlega og þeir spiluðu svo sannarlega fyrir félagið sitt í gær."

HK-ingar eiga Skagamenn í næsta leik og eru strax farnir að undirbúa sig fyrir hann.
,,Nú er bara kominn nýr dagur og núna hefst undirbúningur fyrir Akranes. Þeir hafa ekki byrjað mótið vel og þetta verður eflaust hörkuorrusta á sunnudaginn."

Gunnleifur hefur leikið mjög vel með HK undanfarin ár en ekki fengið tækifæri með landsliðinu. Hann segist lítið hugsa um sæti í landsliðinu.

,,Ég hugsa bara um að standa mig vel fyrir HK og reyni að hjálpa félaginu mínu áfram og hugsa ekki um neitt annað."

Birkir Már Sævarsson, bróðursonur Gunnleifs, skoraði fyrra mark Vals í gær og á sama tíma lentu þeir í samstuði sem leiddi til þess að Gunnleifur lá eftir á vellinum.

,,Hann var næstum búinn að hálsbrjóta mig. Ég talaði við hann í gær og þakkaði honum fyrir að hafa næstum rifið úr mér mænuna," sagði Gunnleifur í léttum tón og bætti síðan við: ,,Hann fylgdi bara hart á eftir og ætlaði aldeilis að skora. Hann stóð sig vel og það var leiðinlegt að hann skyldi meiðast síðan."

Gunnleifur segir ekki hafa komið til greina að fara af velli eftir samstuðið. ,,Maður er bara íslenskur karlmaður, hélt bara áfram, stóð bara upp og hristi þetta af sér. Ég datt út í nokkrar sekúndur en það þarf meira en þetta til að stoppa mann," sagði Gunnleifur að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 4.umferðar - Tomasz Stolpa (Grindavík)
Leikmaður 3.umferðar - Þórður Ingason (Fjölnir)
Leikmaður 2.umferðar - Pálmi Rafn Pálmason (Valur)
Leikmaður 1.umferðar - Tryggvi Guðmundsson (FH)
Athugasemdir
banner
banner