Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. nóvember 2018 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Neymar entist í sjö mínútur - Ekki með gegn Liverpool?
Neymar í baráttunni við Edinson Cavani á dögunum
Neymar í baráttunni við Edinson Cavani á dögunum
Mynd: Getty Images
Brasilíski leikmaðurinn Neymar neyddist til að fara af velli á sjöundu mínútu í leik Brasilíu og Kamerún í kvöld.

Neymar er lykilmaður í franska liðinu Paris Saint-Germain en hann er búinn að gera 13 mörk og 7 stoðsendingar í 16 leikjum á tímabilinu.

Hann er í landsliðsverkefni með Brasilíu en hann tryggði 1-0 sigur á Úrgúvæ á dögunum með marki úr vítaspyrnu.

Neymar neyddist þó til þess að fara af velli á 7. mínútu gegn Kamerún í kvöld en hann virtist vinna til í náranum og var því skipt af velli.

Ofurstjarnan reyndi að framkvæmda fyrirgjöf er hann byrjaði að öskra af sársauka og fór af velli stuttu eftir atvikið.

Afar slæmar fréttir fyrir Paris Saint-Germain en liðið á mikilvægan leik gegn Liverpool í næstu viku. Bæði lið berjast um að komast upp úr riðlinum í Meistaradeildinni en Liverpool er með 6 stig á meðan PSG er með 5 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner