Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   fim 13. júní 2019 22:29
Arnór Heiðar Benónýsson
Ásmundur: Þeir tækluðu hann út úr leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnismenn þurftu að sætta sig við tap á heimavelli gegn sterku liði Víkings Ó. Það þýðir að Ólsarar taka fram úr þeim á toppi deildarinnar og Fjölnismenn hafa mikið til að sanna í næstu leikjum.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  3 Víkingur Ó.

Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var ekki sáttur með fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum í kvöld, en báðir þjálfarar voru sammála um að leikurinn hafi ráðist í honum.

„Það sem fór úrskeiðis var helst slakur fyrri hálfleikur, Ólsararnir komu gríðarlega grimmir til leiks og komust upp með það lengi vel. Í fyrri hálfleik var bara eitt lið á vellinum“

Leikur Fjölnismanna skánaði mikið í seinni hálfleik, en leikurinn tapaðist samt sem áður.

„Mér fannst við eiga ágætis seinni hálfleik, en það dugði bara ekki til.“

Hans Viktor Guðmundsson fór út af á börum í seinni hálfleik, Ásmundur segist ekki vita meira um hans meiðsli að svo stöddu.

„Þeir náðu að tækla hann út úr leiknum án þess að fá neitt fyrir það og við misstum svolítið dampinn eftir að hann fór út af.“
Athugasemdir
banner
banner