Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 21:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Þróttur með kærkominn sigur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 2 - 0 Grindavík
1-0 Kári Kristjánsson ('39 )
2-0 Örn Bragi Hinriksson ('71 )
Lestu um leikinn

Þróttur komst aftur á sigurbraut í Lengjudeildinni eftir sigur á Grindavík í kvöld.

Kári Kristjánsson var nálægt því að koma Þrótti yfir eftir gott samspil við Vilhjálm Kaldal Sigurðsson en skotið rétt framhjá. Stuttu síðar tókst Kára að brjóta ísinn með góðu skoti eftir sendingu frá Vilhjálmi.

Sigurður Egill Lárusson slapp í gegn undir lok fyrri hálfleiks en Hjörvar Daði Arnarsson gerði vel í að loka á hann og kom í veg fyrir að Grindvíkingar færu inn í hálfleikinn tveimur mörkum undir.

Rúnar Ingi Eysteinsson komst í dauðafæri eftir klukkutíma leik og gat jafnað metin en Þórhallur Þórhallur Ísak Guðmundsson sá við honum en Þórhallur kom inn á í hálfleik fyrir Aron Dag Birnuson.

Örn Bragi Hinriksson tvöfaldaði forystuna fyrir Þrótt þegar hann fékk boltann eftir fyrirgjöf.

Magnús Þórðarson hefði getað innsiglað sigur Þróttar undir lokin en lyfti boltanum yfir markið úr dauðafæri. Það kom ekki að sök því sigur Þróttar var staðreynd.

Þróttur hafði aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur leikjum fyrir leik kvöldsins. Liðið situr í 3. sæti með 13 stig eftir sjö umferðir. Grindavík hefur hins vegar aðeins unnið einn leik og er í 11. sæti með sjö stig.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 7 5 1 1 22 - 13 +9 16
2.    Fylkir 7 5 0 2 12 - 8 +4 15
3.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
4.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
10.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
11.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner
banner
banner