Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
banner
   sun 31. maí 2026 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carragher um Slot: Topp stjóri finnur leið til að laga tímabilið
Mynd: EPA
Liverpool er í leit að nýjum stjóra eftir að Arne Slot var látinn taka pokann sinn í gær. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur á Sky Sports, tjáði sig um brottreksturinn.

„Ég var á báðum áttum með Arne Slot. Ég hefði stutt nánast hvaða ákvörðun seme er og ég gæti séð báðar hliðar á málinu en þetta er sjokk," sagði Carragher.

„Topp stjóri finnur leið til að laga síðasta tímabil á einhverjum tímapunkti en innkaupin hjálpuðu honum ekki. Hefur einhver af þeim staðið sig? Það er bara Ekitike, enginn annar. Það er hægt að setja það á stjórann, þarf hann að ná meiru út úr þeim?" Sagði Carragher.

„Hefðu leikmennirnir átt að gera betur? Miklu betur já. Hefði fólkið í stjórn átt að gefa þeim betri hóp inn í tímabili? Já. Það eru margir að benda á hvar Liverpool var á síðustu leiktíð og einnig leikmennirnir sem voru þar árið áður, algjör andstæða í frammistöðu þeirra."
Slapp
banner
banner