„Verðskuldaður sigur, komum vel inn í leikinn og skoruðum bara fjögur góð mörk,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari leiknis, eftir 4-1 sigur sinna manna á HK í Breiðholtinu í dag.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 4 - 1 HK
„Svekkjandi að fá á sig mark en HK svo sem áttu alveg einhver færi en það var svona seinna í leiknum í stöðunni eitt og tvö núll hjá okkur þannig að, bara ánægður með úrslitin, frammistöðuna, vinnuna sem leikmennirnir lögðu í leikinn. Fyrsti heimasigur held ég á tímabilinu þannig ég er bara gríðarlega sáttur við það,“ hélt hann svo áfram.
Leiknismenn mættu verl gíraðir inn í leikinn og fengu þó nokkur gul spjöld í fyrri hálfleik. Aðspurður hvort að það hafi verið partur af þeirra leikplani fyrir leikinn að koma strax inn agressívir segir hann:
„Já það var svona plan að koma út grimmir, ákveðnir, setja pressu á boltann sem við náðum að gera, skorum náttúrulega tvö mörk upp úr því þannig að það má segja að það hafi heppnast í dag og gaf okkur eitthvað til að byggja á.“
Brynjar taldi dómarann hafa verið heldur spjaldaglaðan í leiknum en sjálfur fékk hann að líta tvö slík og þar með rautt. Seinna gula fékk hann fyrir að leika sér með boltann þegar leikmaður HK ætlaði að taka hann upp en fannst honum eitthvað klaufalegt við að fá seinna gula þarna?
„Þetta er nú eina trixið sem ég kann, það var síðasti séns að sjá það held ég bara.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






















